Fjallateymið - Forsíða
english
/// Forsíða
/// Ferðir
/// G-Spot
/// Tenglar
/// Um okkur
// Klifur // Fjallamennska // Önnur útivera
Allt   |  Ísklifur   |  Klettaklifur + Um þennan flokk

07.09.2011 :: Klettaklifur

Hraundrangi

Keyrðum norður eftir vinnu á föstudag, komum á Gistiheimili Akureyrar seint um kvöldið þar sem hörku djamm var í gangi og erfitt var að sofna vegna þess. Við náðum þó nokkrum tímum þar til hafragrauturinn var eldaður og ekki var aftur snúið.

+ Lesa frétt   8 komment


04.05.2011 :: Klettaklifur

Lóndrangar á Snæfellsnesi

Eftir að hafa farið nokkrar ferðir um Snæfellsnes og séð þessa tignarlegu kletta gnæfa uppúr fjöruborðinu við Malarrifsvita hugsaði maður oft með sér hvort ekki sé hægt að klifra þá. Aldrei náði sú hugsun langt þar sem oft var maður í vinnuferðum og hafði ekki tíma til að fara og skoða þá nánar og einnig hugsandi að þetta sé íslenskt eldfjallaberg að þá hafði maður ekki mikla trú á því.

+ Lesa frétt   0 komment


18.03.2011 :: Ísklifur

Íshelgi mars 2011

Í rennunni sem var kjaftfull af foksnjó hafði Addi hinsvegar misst ísöxina sína niður í snjósprungu meðfram klettinum og var hún örugglega komin 2 metra niður því ekkert bar á henni. Við vorum ekki með skurðgröfu með okkur og ákváðum því að skilja helvítið eftir

+ Lesa frétt   0 komment


20.01.2011 :: Ísklifur

Brattabrekka og Flugugil

Eftir tveggja vikna frostakafla vorum við orðnir nokkuð bjartsýnir á góða klifurhelgi en um miðja síðustu viku var hinsvegar ljóst að hlýindi kæmu inn yfir landið rétt fyrir helgi og fórum við að verða frekar stressaðir á að enn ein hlákan mundi skella af fullum þunga og rústa allri þeirri uppbyggingu sem orðið hafi í frostakaflanum.

+ Lesa frétt   0 komment


25.11.2010 :: Ísklifur

Ísklifurhelgi nóv 2010

Fórum fimm saman í Glymsgil á laugardag, Gummi, Arnar, Óðinn og með okkur voru Haraldur Örn og Davíð Jón. Haraldur er í undirbúningi fyrir næsta season hjá Fjallafélaginu, og þurfti því að komast út að viðra sig.

+ Lesa frétt   1 komment


14.11.2010 :: Klettaklifur

Kalymnos 2010

"Ykkur er boðið í brúðkaup til okkar út til Grikklands, athöfnin verður á grískri eyju sem heitir Kos"
-#já, bíddu það er nú næsta eyja við Kalymnos, hmm... þarna væri örugglega hægt að nýta ferðina heldur betur#. "Já ég held hreinlega að við komum bara" Var fljótlegt svar.

+ Lesa frétt   1 komment


31.08.2010 :: Klettaklifur

Hnappavellir

Þrátt fyrir fínt klifur í sumar, hafa Hnappavellir ekki verið heimsóttir fyrr en nú. En það var bætt upp fyrir það nú um helgina.

+ Lesa frétt   2 komment


17.08.2010 :: Klettaklifur

Gummalausudagarnir 2010

Þó svo að Gummi hafi verið með eindæmum flottur á því og skellt sér í alpana þá létu Arnar, Óðinn og Einar ekki sitt eftir liggja. Búið var að er að vera heitt og gott hérna heima á klakanum og var góða veðrið vel nýtt í klettaklifur á suðvestur- og vesturlandi.

+ Lesa frétt   3 komment


18.03.2010 :: Ísklifur

Ísklifur á vesturlandi

Eftir að hafa tekið erfiða ákvörðum um að fara ekki á ísklifurfestivalið í ár var ákveðið að fara smá sárarbótar helgarferð um vesturlandið í staðinn. Stefnan var fyrst tekin á Teitsgil í Húsafelli á laugardeginnum. Þegar þangað var komið var lítið skyggni uppí gilið sem gerði okkur smá stressaða, minnugir þess að hafa farið

+ Lesa frétt   1 komment


23.02.2010 :: Ísklifur

Seyðisfjörður, hringferð pt.2

Við fengum bestu daga ferðarinnar á Seyðisfirði eftir nokkra blautviðrisdaga þar sem við klifruðum nokkrar leiðir en náðum þó ekki að klára mixleiðina í Gufufossi sem við reyndum við á bleytutímanum fyrripart vikunnar. Það verkefni bíður bara betri tíma, en við kröfsuðum

+ Lesa frétt   0 komment


16.02.2010 :: Ísklifur

Hringferð climbing.is pt. 1

Við strákarnir erum á hringferð um landið þessa daganna. Byrjuðum á að keyra norður á Akureyri og stefndum á að klifra vel á Tröllaskaganum um helgina og fara svo austur á firði í framhald. Smá klúður hjá einum okkar var að gleyma klifurskónum heima og fékk þá senda norður með flugi á laugardeginum.

+ Lesa frétt   1 komment


01.01.2010 :: Ísklifur

Gamlársklifur 55°

Við fórum fjórir saman í gamlársklifur í 55° í Búahömrum. Einhverjir voru að hlaupa aðeins frá undirbúningi fyrir kvöldið, hvort sem það var að taka til fyrir nýárspartýið eða elda góðan mat fyrir gesti kvöldsins. Þetta voru Arnar Jónsson, Guðmundur Freyr Jónsson, Guðmundur Sveinbjörn Ingimarsson og Haraldur Örn Ólafsson.

+ Lesa frétt   1 komment


06.12.2009 :: Ísklifur

Fyrsta ísklifur vetrarins

Eftir ágætis frost í vikunni var kominn spenningur í mannskapinn um að komast í einhvern ís loksins eftir talsverða bið. En mikil hláka í seinnipart vikunnar og yfir helgina var þó farið að síga úr voninni.

+ Lesa frétt   0 komment


21.08.2009 :: Klettaklifur

Klifurkeppni Höfðatorgi Menningarnótt

Klifurkeppni var haldin á vegum Klifurfélags Reykjavíkur, Klifurhússins og Eyktar byggingarfélags á Höfðatorgi Menningarnótt 22 ágúst 2009.
Því miður tókum við ekki þátt og skammast ég mín hálf fyrir það þar sem þetta var mjög skemmtilegt og flott. Simmi var kynnir og hélt uppi stemmingunni og hélt öllum við efnið. Ég kom mér fyrir uppá þaki og náði því að taka myndir niður á klifrarana.

+ Lesa frétt   1 komment


20.07.2009 :: Klettaklifur

Svarti Turninn, Búahömrum 18. júlí

Skelltum okkur fjórir saman í Svarta Turninn í Búahömrum í Esjunni laugardaginn 18. júlí. Eftir nokkur símtöl kvöldið áður var vaðið í það að prufa það sem sportið hefur gengið útá síðustu vikurnar að klifra heitustu leið landsins

+ Lesa frétt   0 komment


09.05.2009 :: Klettaklifur

Heljaregg, vesturbrúnum Esju

Það kom að því að veðrið skánaði aðeins í vor og í tilefni þess skelltum við okkur í Heljaregg í vesturbrúnum Esju. Enn aftur var planið að fara austur í Skaftafell, en veðurspáin slóg það útaf borðinu. Veðrið hér í bænum var hinsvegar með besta móti og skelltum við Addi okkur í Heljaregg

+ Lesa frétt   2 komment


19.02.2009 :: Ísklifur

Ísklifurfestival ÍsAlp á Bíldudal febrúar 2009

Loksins var komið að því, festivalið var haldið á Bíldudal helgina 13. - 15. febrúar. Yfir 40 klifrarar voru mættir þegar flest var bæði íslenskir og einhverjir í heimsókn. Veðrið var búið að vera geggjað í einhverjar vikur á undan og byrjaði að hlýna þessa helgi.
Við fórum 4 saman, Gummi, Addi, Óðinn og Dabbi - komum á fimmtudeginum með breiðafjarðarferjunni Baldri og vorum mættir á Bíldó

+ Lesa frétt   4 komment


09.02.2009 :: Ísklifur

Upphitun fyrir ísfestivalið 8. feb. 2009

Búahamrar voru enn einusinni heimsóttir af okkur, en þó klifruðum við 55° í þetta skiptið. Eftir það var farið yfir í tvíburagil þar sem múgur og margmenni voru að spreyta sig á glæsilegum mix-leiðum sem settar hafa verið þarna upp - allt frá M4 - M8.

+ Lesa frétt   0 komment


31.01.2009 :: Ísklifur

Tvíburagil - revisited 31. janúar 2009

Skelltum okkur aftur í Tvíburagil með Óðinn með okkur að klifra þessa frábæru leið sem við fórum um síðustu helgi og aðstæðurnar voru bara mjög góðar þetta skiptið! Vorum að hugsa um Ólympíska, en þar sem það var töluverður ís í henni ákváðum við að ráðast strax í Helvítis fokking fokk aftur, enda beint sólarljós og brjálaðar photo aðstæður.
Þetta var bara mjög þægilegur og skemmtilegur dagur, fórum svo aðeins að brölta í þakinu hægra megin

+ Lesa frétt   2 komment


30.01.2009 :: Ísklifur

Helvítis fokking fokk, Búahömrum - 25. jan 2009

Við erum búnir að fara tvær ferðir núna á flottan stað rétt við borgina í Búahömrum (fyrir ofan Flatus lifir vegginn). Fyrri ferðin var farin í frábæru veðri, en þá var skafrenningur, rok, smá slydda og þess háttar skemmtilegheit.

+ Lesa frétt   0 komment


16.12.2008 :: Ísklifur

Jólaklifur Ísalp, Múlafjalli 13. des 2008

Jólaskíðunar- og jólaklifurdagur Ísalp var haldinn laugardaginn 13. des. Hópur fólks var mætt niður í klifurhús um morguninn og fór einn hópur í Skarðsheiði í fjallaskíðun og sögur segja að þar hafi þau fundið svakalegar skíðalænur!
Við komum 3 saman úr okkar teymi, Gummi St., Addi og Gummi minni og héldum

+ Lesa frétt   4 komment


10.12.2008 :: Ísklifur

Kjós og Eilífsdalur mán. mótin nóv-des 2008

Loksins fór að frysta aðeins aftur hér á klakanum ef svo má kalla, því við skelltum okkur í smá ísklifurferðir, fyrst fórum við Addi með Sigga Tomma, Gunna og Marianne inní Eilífsdal þann 30. nóv en þar gekk okkur Adda ekkert að klifra, vorum eitthvað slappir og ég var nú reyndar með mjög vanstillta broddana eftir að ég breytti þeim úr mixbroddum. En allavega var ferðin góð og gaman að fylgjast með þeim klifra, enda

+ Lesa frétt   1 komment


24.09.2008 :: Klettaklifur

Klettaklifur sumarið 2008

Við skelltum okkur auðvitað aðeins í hamarinn af og til í sumar, sem er nú varla frásögum færandi nema kannski núna þegar það er gúrkutíð fjallamanna vegna veðursins. Eins og Addi orðar það svo skemmtilega að haustin eru tími afmælanna og brennivínsins.
En við erum orðnir óþreyjufullir að komast í smá meira action þar sem veturinn nálgast. Ég tók til nokkrar myndir úr einhverjum ferðum í Valshamar síðan í sumar svona til að halda smá lífi í þessu. Var að prufa mig áfram með ljósmyndatækni í klifri og er

+ Lesa frétt   2 komment


02.06.2008 :: Klettaklifur

Hraundrangi, Öxnadal-Hörgárdal 1.júní 2008

Heyrðu... hvernig væri nú bara að skella sér á hraundrangann svona fyrst við erum hérna.?? þetta var það sem Gummi Ingimars heyrði í vinnuferð til Akureyrar um helgina þar sem báðir Gummarnir á Neyðarlínunni voru.

+ Lesa frétt   3 komment


06.02.2008 :: Ísklifur

Múli og Kjós

Nú hefur verið nóg af ís og skemmtilegheitum, en þó höfum við verið hálf uppteknir heima í bænum við mismunandi verkefni og/eða tímabil í lífinu... Svo vill til að Addi eignaðist litla stelpu á dögunum og óskum við honum auðvitað til hamingju með það !
Eitthvað höfum við þó farið á nýju ári og pikkað í ís, en lítið tekið

+ Lesa frétt   0 komment


26.12.2007 :: Ísklifur

Jólaþurrklifur með meira

Það er ekkert smá skítaveðrið sem er búið að standa yfir síðan í ágúst hérna! Það hefur verið fært á fjöll einhvejra virka daga og varla mikið meira en það. Smá ísaðstæður mynduðust nú fyrir stuttu og var það auðviðtað nýtt. Við erum búnir að heimsækja Múlafjall, Eilífsdal og Teitsgil núna í vetur

+ Lesa frétt   7 komment


16.08.2007 :: Klettaklifur

Kalymnos

Kalymnos er eyja í Gríska hafinu rétt vestan við strendur Tyrklands. Þessi eyja hefur þá sérstöðu að vera ekki túristastaður, heldur hafa nánast eingöngu klifrarar uppgvötað hana sem slíka og sækja mikið þangað. Munurinn á t.d. Rhodos sem er þarna

+ Lesa frétt   2 komment


03.07.2007 :: Klettaklifur

Hnappavellur og Gerðuberg

Klettaklifurfestival Ísalp Hnappavöllum og klifurferð í Gerðuberg.
Klettafestival Ísalp var haldið hvítasunnuhelgina 25-28 maí. Við skelltum okkur að sjáfsögðu austur

+ Lesa frétt   3 komment


14.05.2007 :: Ísklifur

Ís - boulder í Gígjökli

Við strákarnir getum auðvitað ekki verið íslausir í mikið meira en mánuð í senn þannig að við ákváðum að skella okkur í smá Ísbíltúr í Gígjökul. Það var fínt veður, við lögðum bara af stað laust fyrir hádegi 4 saman. Gummi og Halli bróðir hans, Addi og Óðinn. Við tókum að sjálfsögðu með myndavélina

+ Lesa frétt   5 komment


13.05.2007 :: Klettaklifur

Gleðilegt klettasumar

Skelltum okkur í Valshamar til að bjóða sumarið velkomið. Mjög góðir veðurdagar hafa komið upp hérna undanfarið og við erum búnir að fara nokkrar kvöldferðir í Valshamar til að hita upp fyrir sumarið en við ætlum einmitt til Kalymnos í sumar, en meira um það seinna..

+ Lesa frétt   3 komment


06.03.2007 :: Ísklifur

Teitsgil enn á ný... RubberChicken

Áfram héldum við í Teitsgilinu um helgina þrátt fyrir að við vorum allir eitthvað hálf slappir, Gummi búinn að vera veikur síðan á festivalinu, en við skelltum okkur samtsem áður í Teitsgilið við Húsafell og tókum aðra leið.

+ Lesa frétt   3 komment


01.03.2007 :: Ísklifur

Ísfestival ÍSALP, Köldukinn

Ísklifurfestivalið var haldið í Köldukinn milli Akureyrar og Húsavíkur þetta árið.
Herlegheitunum var hinsvegar frestað um eina viku til að erlendir gestir gætu tekið þátt. Það voru engir aðrir en Albert Leichtfried, Ines Papert, Markus Bendler og Audrey Gariepi. Allt topp klifrarar og topp 5 ísklifrarar í heiminum.

+ Lesa frétt   0 komment


26.02.2007 :: Ísklifur

Andarspönnin - Teitsgili

Það hlaut að koma að því að við fengjum að frumklifra leið, og það gerðist núna þegar Olli sendi á ísalp að hann hafði tekið eftir flottum leiðum á leið sinni gengum Húsafell þegar hann var að koma úr Kaldadalnum. Við höfðum reyndar

+ Lesa frétt   3 komment


19.02.2007 :: Ísklifur

Landmannal. & Ýringur

Á föstudagskvöldinu brenndum við uppí Landmannalaugar þar sem spáin var rosalega góð fyrir laugardaginn og ætluðum við að taka helst 2 tinda í nágrenninu. Það endaði þó með því að þetta varð hinn fínasti jeppatúr, en enginn tindur tekinn. Það var nú ekkert svo mikill snjór, en samt auðvelt að festa

+ Lesa frétt   1 komment


23.01.2007 :: Ísklifur

Skálagil í Haukdal - Aumir fingur

Við fórum 4 saman í Haukadalinn um helgina, vorum alveg komnir á tíma með að skoða ný klifursvæði. Meðferðis voru Óðinn, Gummi, Arnar og Davíð(broddalaus ljósmyndari).
Gistum í bústaðnum hjá Adda í Borgarfirðinum á föstudagskvöldið. Tókum daginn nokkuð snemma af stað, brenndum inní Haukadal skíthræddir við

+ Lesa frétt   6 komment


17.01.2007 :: Ísklifur

Ísalpferð í Grafarfoss 14. jan

Grafarfoss 14. jan
Ísalpferð í Grafarfoss.
11 meðlimir Íslenska alpaklúbbsins mættu til leiks í ísklifur í Grafarfoss / Granna á sunnudag. Veðrið var alveg til fyrirmyndar, Grafarfossinn var heldur blautur þannig að við snerum við úr honum, enda skein sólin líka beint á hann. Nokkrir léku

+ Lesa frétt   1 komment


15.01.2007 :: Ísklifur

Spönnin, Glymsgil 13.jan

" Hey! Addi, við skellum okkur bara í þessa leið ! það er nú aldeilis kominn tími til að við hættum þessum kellingaskap alltaf og förum í eitthvað alvöru " sagði Gummi þegar við vorum að rölta inní Glymsgil á laugardaginn. "Hmm... jjjjaaaaááá já... " svaraði Addi og ég náði alveg að sannfæra hann að við skyldum fara í þetta þegar ég bauðst til að

+ Lesa frétt   2 komment


07.01.2007 :: Ísklifur

Mix-klifurnámskeið í Múlafjalli

Mix-klifurnámskeið hjá Jökli Bergmann 6. jan
Við strákarnir, Gummi, Addi og Óðinn skelltum okkur á mixed rock and ice klifurnámskeið í Múlafjalli undir leiðsögn Jökuls Bergmanns fjallaleiðsögumanns. Með þessari þekkingu er hægt að lengja veturinn í báðar áttir umtalsvert. Þetta er tækni

+ Lesa frétt   2 komment


10.12.2006 :: Ísklifur

Glymsgil 9. des.

Enn og aftur Glymsgil.
Vaknað var snemma á laugadagsmorgni og ákveðið að skella sér í smá ísklifur ljósmyndaferð. Við höfðum nefnilega boðið vinn okkar Davíð sem langaði að koma og ljósmynda okkur í klifri

+ Lesa frétt   3 komment


02.12.2006 :: Ísklifur

Botnlanginn 26. nóv

Smelltum okkur í múlann, komum inní Rísanda eftir fyrsta haft, og klifruðum eitthvað smá þar og sigum svo niður og skelltum okkur vestar þar sem Stígandi var í notkun. Við fórum þá inní dótaland eins og það á víst að heita þarna hægra megin við stíganda. Klifruðum smá leið sem heitir Botnlanginn (3-4 gr. 25m há). Þetta var fremur auðveld leið og því ákjósanlegur kostur fyrir

+ Lesa frétt   2 komment


19.11.2006 :: Ísklifur

Fyrsta ísklifurhelgi vetrarins

Á laugardaginn fórum við í Glymsgil til að hita aðeins upp fyrir stóra klifrið sem átti að vera á sunnudeginum með nokkrum félögum úr Íslenska alpaklúbbnum! Klifruðum leið sem heitir Krókur (3. gr 60m). Það var mjög fínt klifur í príma aðstæðum, og voru fullt af leiðum þarna sem hægt var að klifra. Áin var hinsvegar ekki frosin, en það hefði svosem verið hægt að stökkva yfir hana sumsstaðar...

Leiðina tókum við í 4 spönnum bara svona eftir hendinni, þægilegt klifur í mjög hörðum og stökkum ís neðst, en hann varð aðeins mýkri og betri eftir því sem ofar dró í leiðina.

Á sunnudeginum mættum við

+ Lesa frétt   4 komment


05.09.2006 :: Ísklifur

Fínn æfingaísveggur í Sólheimajökli *update

Við fórum 4 saman í ísklifur-æfingaferð í Sólheimajökul. þarna er fínn æfingaveggur sem er bæði hægt að toprope-a og leiða.
Við létum nægja að toprope-a hann í þetta skiptið, en eigum örugglega eftir að koma hingað aftur til að æfa okkur
í leiðslu fyrir veturinn..

Viðbót: Önnur ferð í sama jökul 27. ágúst

Fórum á sama stað aftur og hann var orðinn allt öðruvísi eftir þessa 2 vikna fjarveru okkar. Stór jaki sem stóð þarna fyrir framan vegginn sem við fórum í var t.d. alveg horfinn, bara orðinn að molum fyrir neðan. Áin fór nú undir jökulinn en ekki

+ Lesa frétt   3 komment


24.08.2006 :: Klettaklifur

Klettaklifur í Valshamri og Stardal

Við strákarnir erum búnir að fara í fullt af klettaklifurferðum núna í ágúst, mismargir og misjafnar ferðir. Við erum hinsvegar
ekki búinir að taka mikið af myndum í þessum ferðum, en eitthvað þó. Alskonar reynsla hefur komið upp í þessum ferðum...
misgóðar þó, eins og þessi grein sem Arnar skrifaði frá ferðum sínum ofl. í dótaklifur í Stardal um daginn að þá hefur
ýmislegt komið uppá:

.....:::::::.....

A Small troble with the local rock-life.

Ég Undirritaður, svo Óðinn og Balli

+ Lesa frétt   4 komment


21.07.2006 :: Klettaklifur

Klettaklifur í Valshamri 19. og 20 júl

Smelltum okkur 3 á klettaklifurnámskeið klifurhússins.Gummi, Addi og Óðinn fóru í Valshamar með tveimur af

+ Lesa frétt   4 komment


07.06.2006 :: Ísklifur

Sólheimajökull 4. júní

Smelltum okkur 3 í smá "ísbíltúr" á Hvítasunnudag, Gummi St., Addi og Lalli.
Ekkert að gera heima þannig að við ákváðum bara að rifja upp gamla tíma og fara í ísklifur í Sólheimajökli. Þetta var bara djöfulli gaman, komum við á Skógum og

+ Lesa frétt   0 komment


15.04.2006 :: Ísklifur

Tríó í Eilífsdal

Við fórum 4 í Eilífsdalinn á laugardag. Gummi Stóri, Addi, Óðinn og Gauti. Fórum hinsvegar ekki alveg inní botn á dalnum heldur fórum við í lítið gil hægra megin í honum, þar sem við höfum verið að horfa svoldið á flottan foss sem er þar. Hann kom á óvart hve

+ Lesa frétt   3 komment


09.04.2006 :: Ísklifur

Glymsgil 8. apríl

Við Addi fórum í ísklifur á laugardaginn. Ætluðum fyrst að fara í múlafjallið að klífa jafnvel Stíganda aftur, en þegar við komum þangað voru 3 klifrarar á leiðinni niður, enginn annar en Haraldur Örn var þarna á ferð með 2 félögum, Ingvari sem við hittum í Eilífsdal þegar

+ Lesa frétt   2 komment


05.04.2006 :: Ísklifur

Stígandi, 1. apríl

Við fórum 3 saman - Gummi, Addi og Óðinn og klifum Stíganda í Múlafjalli á laugardaginn. Þetta var fyrsta alvöru leiðslan hans Adda sem rústaði þessu auðvitað, enda vanur ísklifrari á ferð...

+ Lesa frétt   1 komment


19.02.2006 :: Ísklifur

Eilífsdalur 18. feb

Vegna þess að Ísfestivalinu 2006 var aflýst fór stór hópur ÍsAlp félaga í ísklifurferð í Eilífsdal á laugardaginn, yfir 20
fóru af stað frá Select kl. 7 um morguninn og var skipt í jeppana sem keyrðu inn allan Eilífsdalinn.

Hópurinn skiptist dáldið, og var mikill ís á svæðinu og

+ Lesa frétt   4 komment


21.01.2006 :: Ísklifur

Ísklifur II Múlafjalli

Ísklifur II hjá ÍFLM, 21 janúar 2006
Jæja... það hlaut að koma að því að það yrði haldið framhaldsnámskeið í ísklifri, en það var haldið núna á laugardaginn í Múlafjalli. Við Addi skelltum okkur að

+ Lesa frétt   3 komment


15.01.2006 :: Ísklifur

Múlafjall 15. jan

Við fórum 3 félagar úr TEAM-inu í Ísklifurferð í Múlafjall á sunnudaginn! Þetta er í fyrsta skipti sem við reynum fyrir okkur í leiðsluklifri :D Við Addi fórum á föstudagseftirmiðdegi í bíl- og göngutúr á ísklifursvæ...[meira á undirsíðu]

+ Lesa frétt   9 komment


28.12.2005 :: Ísklifur

Vinahópur á Sólheimajökli 28 des.

Það hlaut að koma að því að menn kæmu frá útlöndum með okkur að klifra, en það gerðist einmitt í dag, en þeir Dabbi og Óðinn fengu loksins að koma með okkur í ísklifur!

Við vorum heldur seinir af stað úr bænum, en við vorum þó

+ Lesa frétt   5 komment


04.12.2005 :: Ísklifur

Gígjökull 4 des. ísklifur

Við fórum 4 í ísklifurleiðangur á Gígjökli á sunnudaginn, Gummi St., Addi, Gauti og Halli. Fórum snemma úr bænum á nýja stóra fjallabílnum hans Gauta og vorum komnir uppað jökli dáldið...[meira á myndasíðu]

+ Lesa frétt   21 komment


26.11.2005 :: Ísklifur

Ísklifurnámskeið I - 26. nóvember 2005

Gummi og Addi fóru á námskeiðið Ísklifur I með Íslenskum fjallaleiðsögumönnum á laugardaginn. Dagurinn var tekinn snemma... vaknað kl. 6 og mætt uppí ÍFLM kl. 7.

Við lögðum af stað úr bænum svona um 8 leitið og vorum komnir uppað Gígjökli uppúr kl. 10. Þá var farið ... [framh. á myndasíðu]

+ Lesa frétt   8 komment


12.11.2005 :: Ísklifur

Ísklifurferð - Sólheimajökull 12. nóvember '05

Við fórum 3 úr Team-inu, Gummi Stóri, Addi og Haffi. Við tókum hana Eygló með okkur og stóð hún sig prýðilega !
Þetta var fín ísklifurferð, veðrið var gott, ísinn var þokkalegur og við fundum flotta klifurgíga. Myndirnar tala sínu máli..

+ Lesa frétt   0 komment


22.10.2005 :: Ísklifur

Ísklifurferð - byrjendaferð í Sólheimajökul 22. október '05

Ég fór með Haffa, Rakeli og Rakeli í smá klifurferð á laguardaginn 22. okt.

Við ætluðum að leggja af stað úr bænum um kl. 9, en það endaði þannig að við fórum um kl. 10:30... þið vitið hvernig þetta er..
Við keyrðum þarna framhjá Skógum og beygðum ... [meira á myndasíðu]

+ Lesa frétt   2 komment


09.10.2005 :: Ísklifur

Ísklifur í Gígjökli 8. og 9. október 2005

Ég, Addi og Rakel (systir Lalla) fórum í ísklifursferð í Gígjökul á lagardaginn! Við fórum aðeins í bæinn á föstudagskvöldið, æltuðum að kíkja í pool og fá okkur kannski 1-2 öllara með.. en ósköpin enduðu á hörku djammi niðrí bæ til klukkan 6:30 og við að fara að klifra daginn eftir.

Á laugardeginum ... [meira á myndasíðu]

+ Lesa frétt   0 komment


Klifur

Ísklifur, bratt alpaklifur, sportklifur, mixklifur falla undir þennan flokk.
+ Random greinar
Fjallateymið
www.climbing.is
climbing@climbing.is
Byggir á ZoneAdmin
*Athugið að myndir á síðunni eru í okkar eigu. Ekki er heimilt að afrita þær né birta annarsstaðar án leyfi höfundar.
RSS straumur RSS
Teymið á Fésinu Vi? á fésinu