Fjallateymið - Forsíða
english
/// Forsíða
/// Ferðir
/// G-Spot
/// Tenglar
/// Um okkur
// Klifur // Fjallamennska // Önnur útivera
Fjallgöngur, 23.04.2010
 
+ Staðsetning

Kirkjufell Grundarfirði

Sumardagurinn fyrsti var að ganga í garð eftir mjög fátæklegan ísklifurvetur og var veðurspáin góð.
Helstu myndir vetrarins voru af eldgosi og hellum svo tími var kominn til að gera eitthvað myndrænt. Einföld lausn á því er suttur og þægilegur göngu/brölt túr á Kirkjufell við Grundarfjörð.

Kvöldið áður fóru Gummi, Óðinn og Davíð á Þingvelli að taka næturmyndir, en voru sviknir af góðri norðurljósaspá þar sem engin ljós birtust. Komum okkur þó heim og í svefn um kl. 2 þannig að það var nýtt tækifærið og sofið til 10 morguninn eftir þar sem dagurinn er orðinn vel langur og fjallið fljótklifið. Arnar kom svo með okkur á fjallið meðan Davíð fór að skoða gosstöðvar.

Aðstæðurnar voru bara þokkalegar, smá nýsnævi var í austurhlíðum og uppá topp sem var bara skemmtilega sleipt á köflum. Toppurinn var flottur og vorum að alveg að missa okkur í víðlinsuskotum þarna. Flott útsýni yfir Kvíabryggju og nágrenni. Nóg af fljúgandi rottum sem voru greinilega að undirbúa varp í klettunum og þóttum við ekki kærkominn félagsskapur.



+ Myndir


+ Þín skoðun

//  Vertu Fyrst(ur) til að segja þína skoðun.

Nafn:
e-mail:
Heimasíða:
Texti:
Summan af 9 og 3:

kort
+ Random greinar
Fjalla teymið
www.climbing.is
climbing@climbing.is
Byggir á ZoneAdmin
*Athugið að myndir á síðunni eru í okkar eigu. Ekki er heimilt að afrita þær né birta annarsstaðar án leyfi höfundar.
Teymið á Fésinu Vi? á fésinu