|
/// Forsíða | /// Ferðir | /// G-Spot | /// Tenglar | /// Um okkur |
| // Klifur | // Fjallamennska | // Önnur útivera |
| + Staðsetning | ||||||||||
Hrútfjallstindar, Ferðafélag Íslands 2009Það er auðvitað ekki nóg að fara einu sinni á vori á Hrútfjallstinda, og í þetta skiptið var veðrið æðislegt ! 21 manna hópur á vegum Ferðafélags Íslands hélt á Hrútfjallstinda þessa helgi. Þetta er annað árið í röð sem Ferðafélagið stendur fyrir ferð á tindanna, en í fyrra var farin sama leið (sjá grein hér). Ég sá um fararstjórn í ferðinni og voru mér til halds og trausts með sitthvora línuna Ólafur Örn og Óðinn. Þeir stóðu sig eins og hetjur með línurnar og tókst ferðin mjög vel til. Á sama tíma fór stór hópur á vegum félagsins undir stjórn Haralds Arnars á Hvannadalshnjúk sunnan við okkur og sáum við toppafaranna þar birtast og hverfa þegar við nutum útsýnisins. + Myndir+ Þín skoðun// Friðrik Smári skrifaði þann 09.06.2009 klukkan 08:49 Frábærar myndir. Gummi er greinilega ekki síðri ljósmyndari en fararstjóri. Þakka fyrir stórkostlega og ógleymanlega ferð. // Valgerður Rúnarsdóttir skrifaði þann 09.06.2009 klukkan 13:10 Stórglæsilegar myndir Guðmundur! Þessar svart hvítu ekki síður. Takk fyrir að setja inn mauramyndina af okkur á Suðurtindinum. Sjáumst síðar. // Engilbert Sigurðsson skrifaði þann 09.06.2009 klukkan 22:14 Magnaðar myndir hjá þér. Við maurarnir í hlíðum Suðurtinds(6 FÍFL, Olli og Eggert) erum þakklát fyrir að fá að vera með á tveimur. // Tómas Guðbjartsson skrifaði þann 17.06.2009 klukkan 17:00 Frábærar myndir Guðmundur. Með þeim flottari sem ég hef séð, ekki síst þær svart-hvítu. Vonandi eigum við meðlimir í FÍFL eftir að hitta þig oftar á fjöllum og kannski klífa tind eða tvo. Kveðja Dr. Tommi |
|
| Fjalla teymið www.climbing.is climbing@climbing.is Byggir á ZoneAdmin |
*Athugið að myndir á síðunni eru í okkar eigu. Ekki er heimilt að afrita þær né birta annarsstaðar án leyfi höfundar. |
|